Sælir félagar! Nú er drengurinn kominn áftur til draumalandsins. Hef hafið störf í Glitni og er titlaður þjónustufulltrúi. Mikið er það nú skemmtilegt. Ég býðst innilegrar velvirðingar á því að hafa ekki bloggað í marga mánuði, en ég hef verið mjög svo upptekinn undanfarið. Verkefnaskrif og viðskipti hafa átt hug minn allan undanfarið og hef ég ekki gefið mér tíma til að uppfræða aðdáendur mína um míns lífs vanagang. Annars hefur allt gengið mjög vel, náði að klára annað árið í B.sc. SM. Nei krakkar mínir þetta er ekki bachelor í Sado Masókisma, heldur Bachelor í Service Management, eða business administartion and service management eins og það heitir.
Bergur @ 4:21 PM
|
$$$$
þriðjudagur, apríl 25, 2006
Kominn aftur frá Milano. Mikið var skemmtilegt þar. Ég labbaði flottu götuna sem heitir eitthvað Via de la Napolioni og fór inn í allar flottu búðirnar. YSL, Prada, Missoni, Armani, Louis Vouitton, Vivienne Westwood, Paul Smith! Það var æðislegt að sjá öll flottu fötin! Náði samt ekki að kaupa mér nema einn jakka frá Vivienne Westwood og einar buxur frá Andrew MacKenzie, og já, ég keypti náttúrulega líka skó. Maður getur ekki farið til Milano án þess að kaupa sér skó, enda er Milano skóhöfuðborg evrópu. Ég keypti eitt par David Mayer skó, rosa flotta. Ég sá kirkjuna Duoma að utan, nennti ekki inn í hana því að ég vildi ekki eyða tíma í það þegar ég gat verið í búðunum!!! Fór á engin söfn, en labbaði fram hjá einu og heyrði hljóðlistaverk! Það er alveg nóg er það ekki, ég meina borgin er full af búðum. Til hvers að fara á söfn þegar maður hefur búðir að fara í? Það var eitthvað DaVinci málverk á einhverju safninu, en ég sá bara mynd af því á plakati, það hlítur líka að hafa verið nóg. Ég meina þegar maður hefur bara tvo daga þá verður maður að forgangsraða. Ég fékk mér líka ítalskan ís, mikið var hann góður! Hótelið var líka æði, það var fjögurra stjörnu og við fengum það á mjög góðu verði því að ef að maður pantar seint þá lækkar verðið, það heitir fjárstreymisstjórnun, þegar hótelið áttar sig á því að hótelið hefur herbergi á lausu, þá lækkar það verðið á herbergjunum, því er reglan sú að eftir því sem bókað er seinna, því lægra er verðið. Tómt herbergi þýðir tapað fjárstreymi. Því er betra að selja herbergið undir kostnaði, til að fá einhvern pening inn í kassann. Núna hafið þið fengið smá fræðslu í viðskiptafræði. Geggjað stuð!
Bergur @ 2:12 PM
|
$$$$
sunnudagur, mars 26, 2006
Nú er vorið loksins byrjað að láta sjá sig hérna í Kaupmannahöfn, reyndar er hitastigið ekki sérstaklega hátt en ég rembist nú samt við að reyna að hafa sumar, því að sólin skín. Búinn að taka sumarfötin fram og sólgleraugun. Lista- og menningarlífið gengur sinn vanagang hérna eins og venjulega, skrapp að sjá ballet um daginn, það var óskaplega fallegt. Það er svo skemmtilegt að geta farið að sjá klassískan ballet, hver nennir að horfa á einhvern nútímadans? Ég kem til Íslands í sumar fyrir 27. júní því að þá byrja ég að vinna í Glitni. Glitnir beygjist hér er Glitnir um Glitni frá Glitni til Glitnis. Munið það!! Það voru svo margir sem ég talaði við í símann í fyrra sem sögðu:"Gæti ég fengi samband við GlitniRRR!!!" og þá sagði ég já ég skal gefa þér samband við GlitniiiiIIIIIIIIIIIII svona til að leiðrétta málruglingana. Núna held ég samt að mín málfræði og íslenskukunnátta sé á hröðu undanhaldi. Ég verð maður án tungumáls innan skamms, tala bjagaða dönsku, bjagaða ensku og bjagaða íslensku. Ég vona að ég fái lært mitt móðurmál aftur í sumar.
Bergur @ 3:16 PM
|
$$$$
mánudagur, mars 06, 2006
Nú er ég orðinn greinir á Berlingske Tidernes Nyhedsmagasin. Ég fékk símhringingu í morgun þar sem mér var boðið starf og mér var sagt að þeir þyrftu á mér að halda í skyndi, hurtigst muligt. Ég sagði bara auðvitað get ég komið enda þyki ég með eindæmum bóngóður einstaklingur. Þeir þurftu víst á mínum einstöku hæfileikum að halda og hróður minn berst víst víða, þeir höfðu frétt af mér í gegn um prófessor í skólanum mínum sem að þeir voru að taka viðtal við. Ég var nú bara ánægður með þetta. Þegar maður er orðinn það eftirsóttur að maður þarf ekki einu sinni að sækja um til þess að fá vinnu er ekki hægt að klaga. Ég vona bara að ég verði þeim að einhverju gagni og að sögurnar um mig sem þeir höfðu heyrt séu ekki eins og hverjar aðrar gróusögur sem magnast manna í millum og ég vona því að ég geti staðist væntingar blaðsins.
Bergur @ 8:25 PM
|
$$$$
fimmtudagur, mars 02, 2006
Depeche Mode á laugardaginn komu á óvart, ég átti að sitja lengst aftast í Parken en ég ákvað að hoppa yfir grindverk þrátt fyrir að 6 verðir væru í grennd við mig og náði að troða mér í 8 metra fjarlægð frá sviðinu. Ég sá gaurana bara ágætlega og ég tók eftir því að þeir voru líka að horfa á mig!! Enda geisla ég svo af persónutöfrum að í myrku herbergi er ég sjálflýsandi. Ég er border liner!! Living on the edge eins og það heitir á ensku. Á tónleikunum var geggjuð stemning, náði hún upp undir rjáfur á parken leikvanginum og það sungu allir og dönsuðu með slögurunum eins just can't get enough, sem reyndar er eins og eini slagarinn þeirra því að öll hin lögin eru meira eins og tónverk, þá á ég við lög eins og precious og my personal jesus.
Ég fylgdist með íslenskum fréttum um helgina og fannst mér afar sorglegt að ungur íslendingur skyldi láta lífið í jöklasprungu. En eins fór ég að hugleiða kostnaðinn við að bjarga þessu forréttinda fólki sem er að álpast upp á fjöll í rándýru jeppunum sínum. Afhverju eru líf ríka fólksins meira virði en líf fátæklingana. Á meðan á elliheimilunum liggur fólk sem skipt er um á bleyju á tveggja daga fresti þá eru þrár þyrlur sendar út á eina og hálfa milljón klukkutímann, flugvél kölluð út, sem kostar svipað, og hjálparstarfsmönnum stefnt í lífsháska og allt fyrir dægradvöl ríka fólksins. Hvað er fólk að álpast upp á jökla?? Mér finnst að þetta fólk eigi að bera sjálft kostnaðinn af björgunaraðgerðum og það eigi ekki að láta skattgreiðendur bera kostnaðinn af því þegar eitthvað fer úrskeðis í svona dægradvöl. Ef að ég er að skera kartöflur heima hjá mér og myndi óvart skera af mér hendina væri það á mína ábyrgð, eins finnst mér það vera á ábyrgð þessara einstaklinga sem eiga jeppana að fara í þessar mjög svo áhættusömu ferðir. Þyrlur landhelgisgæslunnar á að nota til þess að aðstoða fólk sem lent hefur í vandræðum við vinnu sína, svo sem sjómenn og aðra sem veikir verða við eðlilegar aðstæður. Hversu langt á ábyrgð ríkisins að ná? Fólk stefnir sér sjálft í þennan voða og því finnst mér að það eigi að bera ábyrgðina á því ef að eitthvað fer úrskeðis. Ég sem skattgreiðandi er ekki reyðubúinn að eyða þeim skattpeningum sem ég hef borgað til íslenska ríkissins í það að hjálpa ofurhugum sem stefna sér í óþarfa hættu að gamni sínu. Ekki frekar en líftryggingarfyrirtæki myndi tryggja reykingamann. Og því spyr ég aftur, hversu langt nær ábyrgð ríkissins?
Bergur @ 5:02 PM
|
$$$$
þriðjudagur, febrúar 07, 2006
Ríkisstjórn Íslands hefur sent út viðvörun til Íslendinga um að ferðast til miðausturlanda, mér finnst reyndar að sú viðvörun hefði einnig átt að gilda um Kaupmannahöfn sem núna líkist tifandi tímasprengju. Enginn efast um hvort að ráðist verður á borgina, spurningin er bara hvenær það verður. Ég hjóla í skólann á hverjum degi og á mánudaginn var "snjóstormur", undir venjulegum kringumstæðum hefði ég tekið strætó og metro í skólann en vegna þess hvernig ástandið er í heiminum þorði ég því ekki og hjólaði því í blindbil og í gegn um skafla í skólann. Það var bara frekar hressandi fannst mér. Það er greinilegt að danir taka ástandið alvarlega og hef ég aldrei áður séð jafn mikið um lögreglu á ferð um borgina eins og þessa síðustu daga. Ég hef ekki enn ferðast með almenningssamgöngukerfinu þannig að ég veit ekki hvernig öryggisgæslan er þar, ég myndi ekki þora að ferðast með þeim fyrr en tekin verður upp gegnumlýsing á öllum farangri og vopnaleit. Mamma hringdi í mig og spurði mig hvort að ég vildi ekki bara dissa skólann og koma heim! Ég sagði að ég þyrfti nú að klára þetta nám en lofaði pent að taka ekki metro. Óttinn er ekki ástæðulaus, ónefnd hryðjuverkasamtök hafa hótað að hakka alla dani í spað og þau hafa komist upp með að ráðast á bæði Madrid og London þrátt fyrir mikla öryggisgæslu. Ég vil því feta í fótspor íslenska ríkissins og hvetja alla landsmenn til varkárni á ferð um Kaupmannahöfn og mæli ég með því að fólk leigi sér hjól eigi það leið um borgina.